Gestabók
5.4.2010 kl. 9:24
Takk innilega fyrir okkur um páskana, vorum í þessu dýrindis húsi á Hofsósi og þið megið sko alveg vera stolt og montin af húsinu, alveg frábært!!! Værum til í að fá það leigt seinna aftur híhíhí
Með bestu kveðju og takk fyrir okkur
Sigurlaug, Oddur og börn
Sigurlaug&Oddur
15.10.2009 kl. 0:10
vildi bara láta vita að ég setti inn nokkrar myndir síðan úr fermingunni hans Einars Loga um Hvítasunnuna.
Kristín snorra
24.4.2009 kl. 11:55
Gleðilegt Sumar
Guðrún Hulda Pálmadóttir
23.12.2008 kl. 11:49
Sjáumst á Jólaballinu.
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla.
Helga ég fékk myndina frá þér og get bara sagt þér það hún er gullfalleg. kv Guðrún Hulda
Guðrún Hulda Pálmadóttir
6.11.2008 kl. 10:21
Bara kvitta fyrir innlitið, alltaf notalegt að frétta af ykkur kv vorinu í Borgarnesi Guðrún
Guðrún Hulda Pálmadóttir
18.9.2008 kl. 20:41
Fyrirgefðu Fríða mín
var ég virkilega aldrei búin að segja þér frá þessari síðu ?En eins og þú sérð er þetta frábær síða, hlakka til að fá þig í heimsókn þann 15 okt.Kv. Mamma
Guðný Snorra
18.9.2008 kl. 19:31
En skemmtilegt
Það hefur alveg farið fram hjá Guðnýju Snorra að segja mér frá þessari frábæru síðu!
Gaman að sjá myndirnar af ykkur frá því að þið voru lítil, svo er auðvitað fermingar myndin mín náttúrulega alveg lang flottust hihi...
kveðja frá Oslo!
Fríða
19.8.2008 kl. 22:16
góðar kveðjur
takk fyrir frábærar myndir, bara gaman að skoða þær.
bestu kveðjur úr Þorlákshöfn
Ásgeir Ingvi Jónsson
16.7.2008 kl. 14:05
Sæl Helga mín , takk fyrir kveðjuna og frábærar myndir frá Lyngholti aldeilis fallegt þarna. Ég er í fríi Fríða og Anders komu heim í gær og Elva og co á morgu. Sjáumst á laugardaginn.Kveðja
Guðný
16.7.2008 kl. 13:43
Sæl Jenný mín og takk fyrir kveðjuna, mér finnst þessi pæling þín um aldursmun okkar ekkert skrítin, mér hefur líka fundist þú miklu miklu yngri en ég, þú Þórunn og Helga systir, guð minn góður algjörar smápíur, og eruð nátturulega enn............. kannski er þetta líka það að ég þroskaðist snemma og varð frekar (kerlingaleg í útliti) , hahahahaha, en finnst ég unglegri með hverju árinusem líður. (svona eru fimmtugar konur í dag, persónudýrkunin að fara með þær) aftur á móti finnst mér þið Þórunn og Helga t.d. ekki eldast mjög vel............hahahahahhah. Staðreyndin er auðvita sú að allar sýnumst við miklu yngri en við erum, ólumst upp á Hofsósi þar sem ferskir vindar úr Unadal og Deildardal léku um vanga og höfðu þessi áhrif, svo maður tali nú ekki um gustinn af Höfðaströndinni sem herti húðina þannig að við fáum aldrei hrukkur. (:-) Nei ferskleikinn verður ekki frá okkur tekinn. Bestu kveðjur Jenný mín og til hamingju með atburðinn í september n.k. Guðný
Guðný Snorra
14.7.2008 kl. 22:45
Til lukku með daginn Guðný....
Ég er samt nú dulítið skúffuð, verð ég að segja. Ekk misskilja mig, ég er ekkert skúffuð yfir að vera ekki boðin í veisluna......og þó...hahahahahaha, alltaf fyndin ég.
En hitt er annað að þegar ég var 8 -10 -15 já og bara krakkarassgat. Þá man ég bara ekki betur en að Guðný Snorradóttir hafi allavega verið 20 ef ekki 30 árum eldri en ég. Jebb, ég man það ósköp vel. En hvað er svo að gerast..., ég held að hægst hafi á klukkunni þinni en mín tekið extra hraðan kipp... Afhverju? Jú vegna þess að miða við það sem hún Helga segir þá ert þú 50 ára .... sem segir mér það að ég er BARA 8 árum yngri en þú...., Þ.e.a.s. í dag ég var mörgum árum yngri en þú hér í gamla daga. Ég man það glöggt....
Jenný
16.6.2008 kl. 10:32
Úps
Svolítið fljót á mér þetta með gömlu myndirnar er náttúrulega bara gaman .Litla sæta ljúfa góða með ljósa hárið og leiðarljósmyndirnar af ykkur systur í gegnum tíðina hárgreiðslan maður minn. kv Guðrún litla Hulda
Guðrún Hulda Pálmadóttir
16.6.2008 kl. 10:27
Gaman af gömlum myndum
Guðrún Hulda Pálmadóttir
20.5.2008 kl. 20:21
Heyrðu Helga þú ert algjör gullmoli mikið er gaman að skoða allar þessar myndir af ykkur, og svei mér þá ég man eftir þér í einni peysunni, en það hlýtur að vera stutt síðan hún var tekin. Kveðja Magga frænka
Magga
19.5.2008 kl. 23:39
Sæl Helga mín, gaman að skoða nýjar og gamlar myndir, þetta er frábært hjá þér.
Kveðja til allra
Guðný systir
5.5.2008 kl. 22:27
Til hamingju með flotta síðu, gaman að skoða. Sérstaklega gaman að sjá hvað þið systkinin hafið lítið breyst með árunum :)
Birna
17.4.2008 kl. 20:45
Fór í fyrsta skipti inn á þessa síðu, frábært að upplifa húmorinn í Ártúnssystkynunum og mikið kann ég vel við myndina af ykkur hún er heimilisleg. fylgist með ykkur áfram.
kveðja Svava Sjöfn (hin eldri)
Svava á Hvanneyri
16.4.2008 kl. 16:28
Frábær síða
Frábær síða hjá þér frænka (eða á ekki Helga ennþá mesta heiðurinn). Alltaf gaman að sjá myndir af fjölskyldunni.
Ásta Ólöf Jónsdóttir
26.3.2008 kl. 23:15
Amen
Faðir okkar flutti mjólk
fór í blíðu og stríðu
Undan honum fagurt fólk
fyllir þessa síðu
Finnst mér þessi hópur hnoss
höfgi verð ég gripinn
Gömul myndin gerir oss
gáfuleg á svipinn !!
Kristján Björn litli
26.3.2008 kl. 13:51
Aldeilis dugleg Helga
Helga mín þú ert alveg frábær í þessu, það væri nú sniðugt hjá mér að fara að setja inn myndir. Ætla að bæta mig með hækkandi sól.Kveðja Guðný
Guðný Snorradóttir
22.2.2008 kl. 16:17
Sjúff, segi nú ekki annað....
...... en mikið var að það kom inn eitthvað. Þannig maður sjái að það sé eitthvað lífsmark.
En nú er komin heimasíða hjá mér... jájá fleiri gerðust vígamenn en ég hugði. En má ég ekki setja þennan link inn sem tengil... hvurning er það eiginlega
Jenný
13.2.2008 kl. 23:29
Nýjar myndir
Jenný mín ég gat reddað þér um einhverjar gamlar myndir sem ég fann, til að svala löngun þinni til að sjá okkur ;)
Vonandi kemur meira við tækifæri, það er alveg satt hjá þér að við verðum að standa okkur í þessu. Gaman að vita að þú heimsækir okkur annað slagið,
kveðja, Helga
Helga
11.2.2008 kl. 12:50
Bíddu HALLÓ, er ekkert að gerast á þessari síðu??? Það gengur ekki að byrja eitthvað voða fínt.
Við viljum meira, við viljum meira..
Koma svo,
;)
Jenný
28.1.2008 kl. 15:26
Áhugavert
Til hamingju með síðuna hún er flott og ég kíki nú reglulega hér inn .
Sigríður Línberg Runólfsdóttir
14.1.2008 kl. 18:19
Glæsilegt ;-)
Gleðilegt nýtt ár öll sömul og til hamingju með þessa fínu síðu.
Ég á alveg örugglega eftir að kíkja hér af og til.
P.s. flottar myndir og ég sammála Þórunni að þið systkinin berið af :-)
Silla Páls
8.1.2008 kl. 8:32
frábær síða hjá ykkur, gaman að geta kíkt og fylgst með ykkur:)
kv Eva
Elín Eva
7.1.2008 kl. 8:44
Þessi síða á nú aldeilis eftir að fá heimsóknir með svona fallegum myndum á forsíðu.
Finnst þó systkinin bera af :0)
kv. Þórunn
Þórunn Snorradóttir
6.1.2008 kl. 20:09
flott
þetta er frábært framtak að koma þessari síðu á.
Er búin að sýna mömmu myndirnar og líst henni vel á þetta
kveðja
kristín
°kristín
5.1.2008 kl. 16:13
Fyrst í heimsókn!
Þá er búið að opna síðuna og vonandi verðið þið dugleg að setja inn á hana.
Helga Snorra